Skoða bók

Depurð : af hverju líður okkur svona illa þegar við höfum það svona gott?

Hansen, Anders  

Halla Kjartansdóttir  

Talgervill  

05:10 klst.  

2023  

Tilraunaútgáfa: Talgervilshljóðbók með texta. Mikilvægasta hlutverk heilans er að lifa af, ekki að líða vel. Þegar okkur líður illa andlega er auðvelt að ímynda sér að eitthvað sé að. Þá er gott að láta minna sig á að kvíði og depurð eru náttúrulegt ástand, leifar langt aftan úr forneskju þegar lífsbaráttan var hörð og við áttum sífellt á hættu að deyja úr hungri eða af völdum sýkinga. Við erum ekki gerð til þess að upplifa stöðuga vellíðan og hamingju - ef svo væri hefðu forfeður okkar ekki náð að lifa af og viðhalda lífkeðjunni. En bjargráðin eru til staðar. Geðlæknirinn Anders Hansen útskýrir hér á aðgengilegan hátt ákveðna þætti í virkni heilans og hvað við getum gert til að létta okkur róðurinn.  

Einsemd Heilinn Kvíði Líðan Sjálfstyrking Þunglyndi