Skoða bók

Ekki staður fyrir aumingja

Green, Ryan  

Ragnar Hauksson  

Birgitta Birgisdóttir  

Sönn sakamál  

04:56 klst.  

2023  

Vorið 1999 var lögreglan kölluð að gömlum og yfirgefnum banka í bænum Snowtown i Ástralíu í tengslum við rannsókn á dularfullum mannshvörfum. Í hvelfingu bankans reyndust vera sex tunnur fylltar sýru með líkamsleifum átta einstaklinga. Fýlan í hvelfingunni var svo megn að lögreglumennirnir þurftu öndunarbúnað til að athafna sig. Jafnframt fundust ýmis verkfæri og tól sem reyndust hafa verið notuð við langvarandi pyntingar, morð og mannát. Rannsókn málsins leiddi í ljós að á bak við þennan óhugnað stóð hópur manna undir forystu Johns Buntings. Hafði hópurinn það að markmiði að hreinsa samfélagið af aumingjum. Ekki staður fyrir aumingja er hrollvekjanleg frásögn af einu óhugnanlegasta glæpamáli í sögu Ástralíu sem vakti óhug um alla heimsbyggð. Rétt eins og í fyrri bókum skrifar Ryan Green á kraftmikinn og lifandi hátt eins og í bestu spennusögu.  

Afbrot Mannát Morð Morðingjar Ástralía Þýðingar úr ensku